Færsluflokkur: Bloggar
6.1.2009 | 17:37
Svarti Listinn
Ég er að velta því fyrir mér nú þegar stefnir á það að annar hver íslendingur er að verða gjaldþrota, hvað verði um notagildi Svarta Listans svokallaða. Verður hann áfram nothæfur, eða verður hann notaður sem heiðursmerki þeirra sem bera þungann af óráðsíu og glundroða í stjórn íslands. Einhverskonar bjána orða. Hönnun óskast.
Annars var mér einnig að detta í hug hvort menn geti ekki ánafnað styrktarfélagi Kolkrabbans eigur sem menn ráða ekki lengur við að greiða af, og þannig komast undan gjaldþroti, varla geta lánadrottnar rengt kolkrabbann um greiðslugetu og verður þá Dabbi eða Geir átomatiskt eigendur slíkra gulleggja.
Maður hugsar alltaf best þegar maður er í heimsókn á klakanum, he he, hlýtur að vera hreina álversloftið.
Lifið heil.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.1.2009 | 12:35
Hvaðan á ný Ríkisstjórn að koma
Það virðist vera töluverður áhugi meðal manna að fá kosningar strax. Alþingismenn virðast ekki hafa neinar sérstakar áhyggjur af þessu, þó þeim finnist þetta nánast óþarfi og tímaeyðsla í þessu umhverfi þar sem fyrir liggur að fara í umræður um EB og mikil vinna í gangi til að halda klakanum á floti.
Það sem ég skil ekki enn, kannske getur einhver komið með ábendingar, hvaða nýja fólk það er sem á að setja inn á þing? Er það einhverjir sem hafa gengið með veggjum og ekki látið sjá sig fyrr, einhver sem ekki er samsekur og viðriðin sprortslukerfið. Einhver með hreint mjöl? Einhver í glerhúsi?
Kosningar verða einungis uppstokkun í sama sauðahúsinu, sami grauturinn í annarri skál. Það eru alltaf til aðilar sem vilja stofna nýjan flokk, aðallega til þess að tryggja sjálfum sér og sínum, sæti á þingi ef allt gengi eftir. Í þessum "nýja flokk" munu veljast fullt af flokkahoppurum, allir þeir sem eru óánægðir koma og vilja vera með og verða fyrir í allri málefnavinnu.
Það er of seint að fara að setja upp kosningar og setja saman nýjan stjórnarhrærigraut, og ef fólk vill taka völdin, þá verður kaos, enda væri slíkt óhugsandi á íslandi þar sem menn eru of háðir sportslukerfinu.
Niðurstaðan er að fólkið verður að krefja stjórnendur um svör og ábyrgð, ef það næst ekki fram, þá er alveg sama hver er stjórnar klakanum, og þá er aðeins eitt eftir, að gefast ekki upp þegar þú ert búinn að missa alt þitt.
Að Fara til annarra landa og setjast þar að. Ég hef gert að árið 84-90 og aftur 2000, það er ekki eins mikið mál og menn halda. Norðurlöndin eru mjög aðalandi kostur, þá sér í lagi Noregur og Danmörk, en alls ekki UK sem er á hraðri leið til U know what.
Lifið heil.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.12.2008 | 21:34
Staða heimsmála - ertu með?
Dabbi er null, Jóhanna er 100
Ég man þann dag á sprengjuþingi Alþýðuflokksins á þá ekki Suðurnesjum að Jóhanna sagði "Minn Tími Mun Koma! Enda var ég á þinginu og var vitni af þessari vitrun. Tími Jóhönnu er ekki alveg komin, hún mun verða forsætisráðherra í næstu ríkisstjórn og aðeins þá er hennar tími komin til að leiða þjóðina, hvert er allra manna getgáta.
Bandaríkin eru á hraðri niðurleið, það sjá allir nema þeir og þeirra peð, eins og td. Bretland. California er svo gott sem gjaldþrota, bílaiðnaðurinn er á villigötum, brjálæðingsleg peningaprentun með lánum í formi bjargræðissjóðs til "me me me" fyrirtæja sem hafa komið að því að búa til núverandi Dýfu eins og Ómar réttilega nefnir svo, mun birtast í óðaverðbólgu sem engin getur stöðvað, þá kannski verður not fyrir eitthvað af öllum þessum pick up trucks til að keyra seðlahrúgurnar á milli.
Bretland, 51 state. Hvað kemur þegar Yankee man hefur ekki lengur þol til að halda úti herstöðvum í Bretlandi og dregur úr og nánast afnemur öll erlend útgjöld í hildarleik "Gjaldþrot America" Þjóðverjar munu glotta þó þeir missi herstöð eða svo, Tyrkir, who cares.
Bretland er á barmi örvæntingar, þeir hafa selt allan sinn iðnað fyrir sporslur, meira að seja kjarnorkuverin sín, þar sem þeir geta ekki haldið þeim gangandi (segja þeir) á þess að fá eitthvað undir borðið. Lífið og tilvera Breta snýst um að gera skammtímasamninga eins og kemur fram í mútumáli BAE hergagnaframleiðandans í máli UAE (United Arab Emirates) og núna síðast SA. (South Africa) og eru nú álitnir ósamkvæmir sjálfum sér sem trúverðuglegir alþjóðlegir viðskipta aðilar vegna mútuþægni og undirlægju. Hver býður betur.
Arabar hafa gefið það út að þeir nú þurfa minnst 74 dollara á tunnuna til þess að geta haldið í, það er ekki óralangt síðan að þeir voru frekar ánægðir með 24 dollara, en eins og við þekkjum vel, græðgi elur af sér stétt þurfta þar sem overhead er þörfinni æðri. Arabaríkin "OPEC" hafa af þessu miklar áhyggjur, enda hafa þeir ekkert annað að selja, nema sand og sól. UAE hefur brugðist við þessu og byggt vestrænan lystigarð sóldýrkenda og þeirra sem gætu hugsað sér að eignast að nafni til stórkostlega fantasíu í muslimaco. Þegar veröldin fer á æðra plan með "ligth carbon footprint" þá verða þeir að stara á þá staðreynd að þeir hafa bara sand sem afurð. Þjóð sem hefur ekkert, er annað hvort að duga eða drepast. Hvað munu þessar eyðimerkurþjóðir taka sér fyrir hendur þegar allur vestræni þefurinn hefur skipt um vindátt? Ég held að það sé satt að engin rotta sé hættuleg fyrr en þú setur hana upp í horn, þá ræðst hún á þig...
Kínverjar eru svolítið sérstakt fyrirbrigði, þeir hækkuðu laun verkamanna til þess að þeir hefðu aukinn kúnnahóp í beinni afleiðingu af minnkandi útflutningi, sumpart vegna uppljóstrana um býinnihald í litum notað við leikfangaframleiðslu, sneaky western trick. Kinverjum vantar sárlega framleiðslu hráefni eins og hina ýmsu málma og þá einnig Olíu sem þeir kaupa meðal annars af Irönum.
Hver er niðurstaðan?
Heimurinn eins og við sjáum hann mun breytast, vatn og hrein orka er lykillinn að framtíðinni, like it or not.
Dont go to far.
Lifið heil.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2007 | 00:16
Morgunstund gefur gull í mund
Ég held að ég muni sakna Bretlands, en það bregst aldrei þegar komið er að morgunkaffinu og blöðin tekin til meðferðar að maður kemst í gott skap. Þeir eru sannir húmoristar það verð ég að gefa þeim. Hér eru nokkur gullkorn.
Lagt hefur verið til að öllum rólum á leikvöllum og almenningsgörðum verði snúið til norðurs, til þess að koma í veg fyrir að börn skaðist ekki af sólarljósinu
Bannað er að nota fótboltaskó, í fótboltaleik barna, þar sem hætta er á að þau skaði hvort annað, lagt er til að þau not gönguskó
http://www.dailymail.co.uk/pages/live/articles/news/news.html?in_article_id=490114&in_page_id=1770
Reglur eru settar lögreglu að sekta fyllibyttur á staðnum, fara með þær í næsta hraðbanka til þess að taka út fé til greiðslu sekta, en nú hafa safnast um það bil 10 milljónir punda í ógreiddar sektir, enda engin þeirra greidd en sem komið er,
Fótboltabullur skulu sektaðar á staðnum um 70 pund, og sleppa við lögreglu yfirheyrslur og skýrslur þar af lútandi, þetta er nú þekkt sem rentayob, þar sem menn láta ófriðlega fyrir 70 pund
Jólaljós á vegum bæjarfélags skulu framvegis kölluð vetrarljós, þannig að ekki sé hætta á að móðga none-christians
Fangar skulu fá leyfi til þess að nota eiturlyf séu þeir þegar neitendur, annað væri brot á mannréttindum
Fangar skulu fá lykil að fangaklefa, þannig að þeir geti læst á eftir sér, mannvirðing heitir það
Búðarþjófar sleppa við dóm, ef þeir segja "Sorry"
Allir fangar sem ekki eru taldir hættulegir skulu fá að fara allt að þrem vikum fyrr úr fangelsi og fá peninga fyrir tapaðri gisitingu og fæði
Bekkir í almenningsgörðum, þá sérstaklega minningarbekkir, skulu fjarlægðir um land allt, þar sem komið hefur í ljós að þeir eru of lágir fyrir aldraða, þannig að þeir eiga erfitt með að standa upp, (ekkert smá átak það).
Bullið heldur áfram, maður spyr sig, hvaða vitleysingar eru við völdin hér í Bretlandi
Pólskur innflytjandi ákvað um daginn að senda son sinn í skóla til Pólands
http://www.dailymail.co.uk/pages/live/articles/news/news.html?in_article_id=489793&in_page_id=1770
Dásamlegt land
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Njáll Harðarson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 771
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar